Þorlákshöfn, Svartaskersbryggja, endurbygging þekju og lagna 2023
Hafnarstjórn
Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn
Helstu verkþættir eru:
· Rífa upp og saga malbik.
· Leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
· Steypa um rafmagnshús.
· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik.
· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju alls um 2350 m².
· Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
· Malbika þekju um 5000 m².
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 29. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.